

Dreymir þig um nýtt eldhús, bað eða fataskápa?
Danskar innréttingar í sýningarsal Rafha að Suðurlandsbraut 16. Við gefum þér sex góðar ástæður til að velja Kvik á þitt heimili.
EldhúsinnréttingarSkoða úrval hjá Kvik →
BaðinnréttingarSkoða úrval hjá Kvik →
FataskáparSkoða úrval hjá Kvik →Sex ástæður til að velja Kvik
40 ár í fararbroddi
Kvik leggur mikla áherslu á hágæða danskar innréttingar á verði sem kemur á óvart. Valið á að vera einfalt og þægilegt og endurspegla tímalausa skandinavíska hönnun.
Umhverfisvernd í fyrirrúmi
Innréttingarnar berast til landsins flatpakkaðar, sem dregur úr kolefnisspori, og eru framleiddar með áherslu á sjálfbærni. Öll viðarframleiðsla er með FSC sjálfbærnivottun og hurðartýpur sem ekki eru úr náttúrulegum við eru með yfirborðsfilmu úr 100% endurunnu PET plastefni.
Fáðu meira fyrir minna
Neðri einingar eru 80 cm háar með 6,5–12 cm sökkli og bjóða því 15% meira skápapláss en hjá flestum samkeppnisaðilum. Auk þess fást einingar sem eru 13 cm dýpri; með þeim verður borðpláss 20% meira og skápapláss 40% meira.
Við lofum góðri þjónustu
Hjá Kvik færð þú ókeypis ráðgjöf hjá vel þjálfuðum söluráðgjöfum með mikla reynslu af hönnun. Teikningar eru unnar með viðskiptavinum í teiknitímum, bæði á staðnum eða í gegnum fjarfundarbúnað.
Bókaðu tíma hjá okkur
Í teiknitíma er farið vel yfir efni, skipulag og væntingar þínar. Vandaðar þrívíddarteikningar koma hugmyndum á framfæri og tilboðið þitt er sett upp samdægurs.
Veldu þína leið
Þú hefur val um hvort þú vilt fá vörurnar afhentar ósamsettar, samsettar eða uppsettar af sérhæfðum starfsmönnum Kvik.
Bóka tíma í fría ráðgjöf
Bókaðu tíma hjá innréttingahönnuðum okkar sem leiða þig í allan sannleika um Kvik innréttingar. Þú færð bæði teikningar og verðtilboð samdægurs, þér að kostnaðarlausu.
Þú getur líka hringt í síma 588 0500, sent póst á kvik@rafha.is eða litið inn í sýningarsalinn. Við tökum vel á móti þér.

Sýningarsalur og lager Kvik
Sýningarinnréttingar til sölu
Kvik Align sýningareldhús er til sölu vegna breytinga með 50% afslætti frá listaverði. Innifalið eru skápar, lúxusskúffur, sökklar, innvols, borðplata, undirlímdur vaskur og blöndunartæki. Hægt er að aðlaga innréttinguna að einhverju leyti að þínum þörfum.
2.120.573 kr.1.093.280 kr.