Hvernig getum við aðstoðað?
Ertu með bilað tæki sem þarfnast viðgerðar eða vantar þig varahlut? Rafha leggur metnað sinn í að leysa öll mál sem því berast fljótt og örugglega.
Viðgerðarbeiðni
Við veitum viðgerðarþjónustu með samstarfsaðilum. Ef biðja á um varahlut eða panta viðgerðarmann er nauðsynlegt að hafa ítarlegar upplýsingar um gerð, framleiðslunúmer og tegund tækis ásamt greinargóðri bilanalýsingu og upplýsingum um kaupdag.
Þú getur líka hringt í síma 588 0500 eða sent póst á rafha@rafha.is.
Hvar finn ég týpuskiltið?
- Þvottavélar og þurrkarar
- Fyrir ofan eða neðan hurðarop þegar hurðin er opnuð.
- Uppþvottavélar
- Í hurðarfalsinu hægra megin.
- Kæliskápar
- Vinstra megin þegar grænmetisskúffa er tekin út eða á innanverðri hlið að ofanverðu.
- Ofnar og eldavélar
- Í hurðarfalsinu á ofninum þegar hurðin er opnuð.
- Helluborð
- Undir borðinu.
- Viftur og háfar
- Að innanverðu þegar fitusían hefur verið tekin úr.
Tækjavernd Rafha
Á vörusíðum tækja má velja Tækjavernd um leið og tækið er sett í körfu, til dæmis til þriggja eða fimm ára fyrir þvottavélar og þurrkara. Verðið sést á vörusíðu hvers tækis.
