Saga Rafha frá 1936

Það er fátítt að íslensk fyrirtæki nái háum aldri. Allir þekkja Rafha eldavélina, en um skeið framleiddi Raftækjaverksmiðjan í Hafnarfirði mun fleiri tegundir raftækja.

  1. 1936

    Raftækjaverksmiðjan í Hafnarfirði

    Heimilin voru að rafvæðast með virkjun Sogsins og það vantaði rafmagnstæki. Að tillögu Emils Jónssonar samþykkti Alþingi að verja 50 þúsund krónum til stofnunar raftækjaverksmiðju. Rafha var formlega stofnað 29. október 1936; ríkið fór með þriðjungshlut á móti 22 einstaklingum.

    Verksmiðja Rafha á syðri bakka Lækjarins í Hafnarfirði. Mynd: Byggðasafn Hafnarfjarðar.
  2. 1937

    Eldavél með framleiðslunúmer 1

    Lokið var við 702,5 m² verksmiðju við Lækjargötu þar sem um 20 verkamenn störfuðu. Fyrsta Rafha eldavélin leit dagsins ljós um mánaðamótin ágúst–september 1937 og það sem eftir lifði árs voru framleiddar 184 eldavélar.

    Rafha eldavélin.
  3. 1940

    Spíralhellur og amerískt svipmót

    Með hernámi Danmerkur og Noregs þurfti að leita nýrra leiða til að útvega hráefni. Axel Kristjánsson framkvæmdastjóri hélt vestur um haf og ný eldavél var hönnuð með amerískum rafbúnaði, svokölluðum gorma- eða spíralhellum og hitastilli með Fahrenheit-kvarða.

  4. 1946

    Samið við Electrolux

    Verksmiðjan var stækkuð til muna árið 1945 og árið 1946 var leitað samninga við Electrolux um notkun einkaleyfa þeirra. Á fyrsta áratugnum framleiddi verksmiðjan 22.730 rafmagnstæki af 30 tegundum og hjá fyrirtækinu störfuðu 46 menn.

  5. 1952

    Rafha ryksugan og þvottavélin Mjöll

    Framleiðsla hófst á ryksugum og sama ár fóru Rafha og Vélsmiðjan Héðinn að framleiða þvottavélina Mjöll í sameiningu.

    Rafha ryksugan leit dagsins ljós árið 1952. Mynd: Byggðasafn Hafnarfjarðar.
  6. 1956

    60.683 rafmagnstæki á 20 árum

    Á 20 ára afmælinu hafði verksmiðjan framleitt 60.683 rafmagnstæki, þar af 25.206 heimiliseldavélar. Húsnæðið var stækkað 1951 og aftur 1957 og taldi þá yfir 5000 fermetra. Árið 1958 hófst framleiðsla á innbyggðum ofnum og helluborðum.

    Nokkur helstu Rafha heimilistækin, meðal annars eldri og yngri gerð eldavélanna og þvottavélin Mjöll. Mynd: Byggðasafn Hafnarfjarðar.
  7. 1961

    Yfir 108 þúsund raftæki

    Á 25 ára afmælinu höfðu verið framleidd yfir 108 þúsund raftæki. Innflutningur var gefinn frjáls upp úr 1960 og samkeppnin harðnaði.

  8. 1980

    1500 eldavélar á ári

    Framleiðsluvörum fækkaði á sjöunda og áttunda áratugnum en um 1980 voru enn framleiddar árlega 1500 eldavélar, um 35% af heildarsölu eldavéla hér á landi. Þá hófst einnig innflutningur á heimilistækjum og á níunda áratugnum framleiddi Rafha um 4000 eldhúsviftur á ári sem meðal annars voru fluttar út til Noregs, Danmerkur og Bretlands.

  9. 1986

    Fimmtíu ára afmæli

    Tímamótunum var fagnað með opnun nýrrar verslunar í húsakynnum Rafha við lækinn í Hafnarfirði, með innfluttum heimilistækjum, rammíslenskum eldavélum og viftum og innréttingum.

  10. 1990

    Framleiðslu hætt, verslunin lifir

    Rekstri verksmiðjunnar var hætt. Verslunarhlutinn, viðskiptatengsl og nafnið Rafha var selt þáverandi framkvæmdastjóra, Ingva I. Ingasyni, og fjölskyldu hans sem hélt fyrirtækinu gangandi.

  11. 1996

    Suðurlandsbraut 16

    Síðan 1996 hefur Rafha rekið 1000 fermetra verslun við Suðurlandsbraut 16 í Reykjavík. Árið 2005 var öll verslunin endurnýjuð, úrvalið aukið og þjónustan bætt.

  12. Í dag

    Heimsþekkt merki og Kvik innréttingar

    Í dag flytur Rafha inn og selur heimilistæki frá heimsþekktum framleiðendum á borð við Electrolux, Zanussi, AEG, Siemens, Bosch og Domo, ásamt eldhúsinnréttingum frá danska merkinu Kvik.

Þetta var smíðað í Hafnarfirði

eldavélar · ryksugur · þvottavélin Mjöll · rafmótorar · bökunarofnar · þilofnar · þvottapottar · kæliskápar · frystikistur · kælitæki fyrir verslanir · flúrlampar · kaffikönnur · gufukatlar · vatnshitunartæki · miðstöðvarhitarar · kæliborð · rörofnar · steikarpönnur · spennubreytar · rafmagnstöfluskápar · eldhúsviftur