Vörunúmer 096080355

Bialetti Classico Kaffi 250g malað

1.131 kr.1.450 kr.

Til á lager

  • Ítalskt kaffi
  • 250g malað
  • Classico
  • Hentar best í mokka könnur

Hvernig viltu fá vöruna?

Smátæki eru sótt í verslun að Suðurlandsbraut 16. SMS er sent þegar varan er tilbúin til afhendingar.

Samtals1.131 kr.
Verð með virðisaukaskatti

30 daga skilaréttur. Skilmálar og ábyrgð · Allir afhendingarmátar

Vörulýsing

Kaffið frá Bialetti er einstakt. Bialetti vil meina að ristun sé eins konar list sem fangar ilm upprunans. Bialetti leggur því sérstaka áherslu á ristunarferlið og að það sé byggt á hægri og nákvæmri ristun. Karakter baunanna er þannig fangaður og lyktin tengir mann við uppruna þeirra. Kaffið frá Bialetti er búið til með mokkakönnuna í huga á þann hátt að það er malað í kornastærð sem hentar mokka og eða pressukönnum einstaklega vel. Bialetti kaffinu er svo pakkað í sérstakar pakkningar sem viðhalda bragði og ferskleika sem best.

Delicato er 100% Arabica kaffi sem er akkúrat það sem Ítalinn myndi mæla með. Það hefur ákafa tóna af Brasile Naturale uppruna sem gefur kaffinu rétta jafnvægið. Fullkomið jafnvægi milli sætu og þéttleika.

Koffínlausa kaffið hefur einnig slegið í gegn. Það heitir Deka og er í græna pakkanum. Deka er miðlungsristað með arómatískum tónum af korni og ristuðu brauði. Það er gaman að geta fengið sér gott kaffi að kvöldi til án þess að það innihaldi koffín og hafi þannig áhrif á svefninn.

Intenso kaffið er síðan dökkristað og sérstaklega þróað til að ýta undir ilminn af ristuðu brauði og kakói. Intenso er það sem inniheldur mesta koffínið af Bialetti kaffitegundunum og er í dökkbláa pakkanum.

Classico kaffið er síðan alltaf sígilt og hentar flestum vel. Classico kemur í rauða pakkanum og er meðalristað með sætum ilm af blómum og hnetum.

Einnig er hægt að fá súkkulaðikaffi, hnetukaffi og vanillukaffi fyrir þá sem vilja smá tilbreytingu.

Svipaðar vörurSjá allt →