Dualit Classic Brauðrist
- 1200W
- 2 sneiðar
- Metallic charcoal - kolagrá
Vörunúmer 20261-16
Til á lager
Smátæki eru sótt í verslun að Suðurlandsbraut 16. SMS er sent þegar varan er tilbúin til afhendingar.
30 daga skilaréttur. Skilmálar og ábyrgð · Allir afhendingarmátar
Dualit brauðristin á rætur sínar að rekja allt aftur til ársins 1952 þegar Max Gort-Barten, stofnandi hins sögufræga fyrirtækis, hannaði nýja 6 sneiða brauðrist fyrir stóreldhús og veitingastaði í Bretlandi.
Í dag eru Dualit brauðristar viðurkenndar og rómaðar fyrir einfaldleika sinn og klassískan iðnaðarstíl sem hefur varla breyst í 70 ár. Þær eru allar handsmíðaðar í verksmiðju fyrirtækisins í West Sussex og nafn þess sem setti saman tiltekna brauðrist er grafið í botninn.
Best af öllu er svo auðvitað hið fullkomna ristaða brauð, þökk sé ProHeat® elementinu sem er einstaklega þéttriðið. Brauðið er því nánast jafnristað horn í horn, stökkt að utan og mjúkt að innan.