Stór heimilistæki eru sótt á lager í Skeifunni 9, beint fyrir aftan KFC. Vínkælar og viftur eru sótt í verslun. SMS er sent þegar varan er tilbúin til afhendingar.
Viltu aðstoð við tækið?
Þessi þjónusta er í boði með heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu.
IQ700 sambyggður ofn með örbylgjum, raddstýringu, TFT snertilitaskjá og HumidClean Plus hreinsibúnað. Hugmyndafræðin á bak við Siemens StudioLine línuna er einföld: Aðeins það besta af öllu. Með HomeConnect appinu getur þú stjórnað ofninum hvar sem er.
Það allra helsta:
Sambyggður örbylgjuofn og ofn í einu tæki
Oven Assist raddstýring láttu Alexa vita hvaða rétt þú ert að elda, eða notaðu HomeConnect appið og veldu rétta kerfið
HumidClean hreinsun - settu dropa af uppþvottalegi í 400 ml af vatni sem þú hellir í botninn á ofninum. Veldu hreinsikerfið humidClean og láttu ofninn sjá um restina. Þegar kerfinu lýkur strýkur þú óhreinindin auðveldlega af með eldhúsrúllu eða uppþvottabursta
3,7 tommu TFT snertilitaskjár með myndrænni framsetningu
HomeConnect - þráðlaus notkun með appi í gegnum snjallsíma eða spjaldtölvu
Glerhandfang - Til að gefa ofninum einstakt fágað útlit er handfangið úr gleri sem nánast er ósýnilegt þegar horft er framan á ofninn
Og allt hitt:
15 eldunarkerfi: Undir- og yfirhiti, blástur og grillinnskot, stórt grill, lítið grill, undirhiti, forhitun diska, nærgætinn blástur, nærgætin upphitun, blástur, örbylgjur, undir- og yfirhiti ásamt blæstri, grill og örbylgjur, grill hálf breidd + örbylgjur + blástur
2 örbylgjukerfi: örbylgjuofn, blástur með örbylgjum (combi) sem sparar allt að 50% tíma
Hitaval 30-230°C
5 örbylgjustillingar: 90W, 180W, 360W, 600W og boost 900W
cookControl Plus - sjálfvirk eldunakerfi og hjálparkokkur fyrir mismunandi rétti