Siemens iQ700 Studio Line Gufuofn
- XXL 71 lítra
- 4D heitur blástur - FullSteam Plus
- A pp og raddstýring
Siemens · Vörunúmer HS958GCB1
Sérpöntun
Stór heimilistæki eru sótt á lager í Skeifunni 9, beint fyrir aftan KFC. Vínkælar og viftur eru sótt í verslun. SMS er sent þegar varan er tilbúin til afhendingar.
Þessi þjónusta er í boði með heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu.
30 daga skilaréttur. Skilmálar og ábyrgð · Allir afhendingarmátar
Þessi Siemens ofn er hluti af 2023 IQ700 topplínunni með dökku stáli og svörtu gleri. Ofninn er búinn Fullsteam Plus gufukerfi, TFT litasnertiskjá, humidClean gufuhreinsikerfi, ljúflokun og byltingarkenndum 4D hot air Plus blástursofni . Fullkominn kjöthitamælir og HomeConnect WiFi tenging er möguleg með sérstöku appi frá Siemens.
Með FullSteam Plus tækninni nærð þú 120°C heitri gufu úr ofninum sem er fljótvirkara en gengur og gerist í öðrum gufuofnum (100°C) og gefur því fljótari og skilvirkari afköst.
Með því að elda á FullSteam gufu nærð þú að viðhalda næringarefnum í t.d. grænmeti enn betur en á venjulegu baksturskerfi.
Njóttu fullrar stjórnunar á ofninum þínum.
Viltu opna alla möguleika ofnsins þíns? Tengdu einfaldlega ofninn þinn við Home Connect appið til að stjórna honum hvar sem er – líka með raddstýringu Amazon Alexa eða Google Assist. Kveiktu og slökktu á eldunarkerfinu, breyttu stillingum og stjórnaðu upáhalds stillingum – án þess að vera í eldhúsinu.
Stillingar eru samstilltar á milli appsins og ofnsins og þú munt fá tilkynningar þegar kerfi er lokið.
Þú ert ekki viss um hvaða eldunarkerfi hentar hvaða rétti? Segðu ofninum þínum í gegnum Amazon Alexa raddstýringartækið hvaða rétt þú vilt elda. Eða að öðrum kosti í gegnum Home Connect appið. Hjálparkokkurinn mun þá stinga upp á viðeigandi hitastigum eða eldunarkerfum og skipta beint yfir - flýtileið sem sparar þér tíma.
Bættu dropa af þvottaefni í 400 ml af vatni. Hellið þessari skollausn á miðjuna á köldu ofngólfinu. Stilltu einfaldlega á humidClean Plus hreinsunarkerfið og láttu ofninn sjá um restina. Um leið og prógramminu er lokið geturðu auðveldlega fjarlægt óhreinindin sem hafa mýkst af gufunni með rökum klút.
Það helsta: