Liebherr Peak Kæli og Frystiskápur
- HxB: 177,2 x 56 cm
- 184 / 71 lítra
- Hljóð 33 dB(A)
Liebherr · Vörunúmer IRBAc5190-617
Sérpöntun
Stór heimilistæki eru sótt á lager í Skeifunni 9, beint fyrir aftan KFC. Vínkælar og viftur eru sótt í verslun. SMS er sent þegar varan er tilbúin til afhendingar.
Þessi þjónusta er í boði með heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu.
30 daga skilaréttur. Skilmálar og ábyrgð · Allir afhendingarmátar
Liebherr Peak BioFresh kæliskápur með HydroBreeze rakastýringu í skúffum. Skápurinn er einstaklega hljóðlátur, aðeins 32db.
BioFresh Professional skúffukerfið gefur matvælum aukin ferskleika og geymsluþol. Í bland við rétt hitastig og rakastig færð þú bestu endingu sem kostur er á
Viltu kæla ávexti og grænmeti eins og atvinnu kokkur? Þú munt fá afköstin með HydroBreeze. Kaldur úði blandað við loft rétt yfir 0°C gefur matnum aukinn kraft fyrir lengra geymsluþol. HydroBreeze virkjast á 90 mínútna fresti í 4 sekúndur og í 8 sekúndur þegar hurðin er opin.
Stökkt salat og jarðaber - vinsælustu matvörurnar eiga það besta skilið. Með Biofresh skúffunum nærðu að auka endingu á matvælum, þá sér í lagi þessum viðkvæmustu um töluverðan tíma þökk sé rakastýringu og réttu hitastigi hverju sinni.
Beintengd vatnsvél innfelld í innri vegg kæliskápsins fyrir stílhreint og falið útlit.
Fullar hendur? Engar áhyggjur! Eina sem þarf er létt bank eða raddskipun og skápurinn opnar sig sjálfur. Hægt er að stilla opnunargráðu og tímalengd eftir þörfum. Sjálfvirk lokun sér svo til þess að skápurinn gleymist ekki opinn.
Ambient lýsingin gefur ísskápnum þínum sérstakan blæ. Lýsingin skapar einstaka birtu á innréttingunni og eykur andrúmsloftið í heild sinni.
Liebherr er ekki aðeins einn stærsti framleiðandi í heiminum á ýmis konar á iðnaðartækjum s.s. byggingakröngum og beltagröfum heldur einnig leiðandi á öðrum hátæknisviðum með yfir 42.000 starfsmenn sem starfa í 130 fyrirtækjum víðsvegar um heiminn og samanlagða veltu uppá 9 milljarða evra. Kæliskáparnir frá Liebherr hafa verið framleiddir í yfir 60 ár framleiddir eftir ströngustu gæðakröfum í Ochenhausen í Þýskalandi og raðað til sín verðlaunum fyrir gæði, hönnun og endingu. Liebherr framleiðir flestöll kælitæki fyrir Miele.