AEG · Vörunúmer NBE7P731AT

AEG MealAssist 7000 Ofn

163.761 kr.209.950 kr.

Til á lager

  • XXL 71 lítra - Matt svartur
  • Orkuflokkur A++
  • Kjöthitamælir - Pyrolyse
  • Hjálpar kokkur - WiFi

Hvernig viltu fá vöruna?

Stór heimilistæki eru sótt á lager í Skeifunni 9, beint fyrir aftan KFC. Vínkælar og viftur eru sótt í verslun. SMS er sent þegar varan er tilbúin til afhendingar.

Viltu aðstoð við tækið?

Þessi þjónusta er í boði með heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu.

Samtals163.761 kr.
Verð með virðisaukaskatti

30 daga skilaréttur. Skilmálar og ábyrgð · Allir afhendingarmátar

Vörulýsing

Sjálfshreinsandi, kjöthitamælir, 3D hitadreifing, app og flott stjórnborð auk fjölda aðra eiginleika gera þennan ofn af einum þeim fullkomnusta á markaðnum.

CookSmart Touch

Með CookSmar Touch verður eldamennskan ennþá einfaldari. Vistaðu uppáhalds réttina þína í appinu í snjallsímanum þínum.

Innbyggður kjöthitamælir

Kjöthitamælirinn gerir þér kleift að fylgjast með kjarnhitanum, fyrir hina fullkomnu steik. Bæði er hægt að sjá raunhita á stjórnborðinu á ofninum og í appinu sem þú getur tengt ofninn við.

Ótal tilbúin eldunarkerfi

Í ofninum eru ótal tilbúin eldunarkerfi sem leiða þig í gegnum matreiðslu á nánast hverju sem er, og þá skref fyrir skref. Kjötréttur, grænmetisréttur, lasagne, pizza, hvað er í matinn í kvöld ?

AI TasteAssist

Hættu öllu óþarfa giski og slumpi í eldamennskunni. Keyrðu uppskriftina þína í gegnum AI tengingu í TasteAssist appinu og ofninn um aðlaga sig að bestu aðstæðum hverju sinni.

  • AI TasteAssist is an AEG app feature that can import recipes in Italian, French, German, English, Swedish and Dutch. Languages to be added throughout 2025 are Polish, Czech, Hungarian, Romanian, Norwegian and Danish. The AEG is available in the App Store and Play Store.

Það helsta:

  • Pýrólískur sjálfhreinsibúnaður - veldu á milli þriggja sjálfhreinsikerfa þar sem ofninn læsist og brennir upp til agna alla fitu og óhreinindi við 500°C. Katalískur lykteyðir sem eyðir lykt við brennslu.
  • Kjöthitamælir - stingdu mælinum í kjötið eða fiskinn og láttu ofninn sjá um restina. Hljóðmerki heyrist þegar maturinn er tilbúinn
  • SoftMotion ljúflokun á hurð
  • AssistedCooking - veldu þín uppáhalds uppskrift og ofninn sér um að stilla hitastig og tíma. Fullkomin máltíð í hvert skipti

Og allt hitt:

  • Frábær hitadreifing með 3D blæstri - jafnvel með margar plötur á sama tíma
  • Rafeindaklukka með möguleika á framstillri ræsingu
  • Rafeindastýrð hitastilling 30-300°C. Nákvæmari og minna hitaflökt
  • IsoFront Top fjórglerjuð og niðurkæld hurð sem verður mest 44°C heit að utanverðu
  • Snertitakkar - flott og auðskiljanlegt stjórnborð
  • Blástursjálfvirkni - slekkur á blæstrinum þegar hurðin er opnuð
  • FloodLight - tvöföld halogenlýsing
  • Barnalæsing á hurð og stjórnborði möguleg

Og það tæknilega:

  • Orkuflokkur A++
  • Rúmmál ofns 71 líter
  • 1 ofnskúffa, 2 bökunarplötur og 1 grind fylgir
  • 16 amper - 3500 W
  • Litur matt svartur
  • Utanmál H x B x D: 59,4 x 59,5 x 56,7 cm
  • Innbyggimál H x B x D: 59 x 56 x 55 cm

Svipaðar vörurSjá allt →

Siemens

Siemens iQ700 Hitaskúffa

  • Hitaskúffa til innbyggingar
  • 60 x 14cm - Þrýstiopnari
  • Pasar með Siemens Studio Line
149.950 kr.
Til á lager