Electrolux · Vörunúmer PD82-4MG

Electrolux Pure D8 Ryksuga

37.975 kr.

Til á lager

  • 600W = 2200W mótor
  • 12M vinnuradíus
  • Parkethaus fylgir
  • Hljóð 57 db(A) - ljósgrá

Hvernig viltu fá vöruna?

Smátæki eru sótt í verslun að Suðurlandsbraut 16. SMS er sent þegar varan er tilbúin til afhendingar.

Tækjavernd Rafha

Samtals37.975 kr.
Verð með virðisaukaskatti

30 daga skilaréttur. Skilmálar og ábyrgð · Allir afhendingarmátar

Vörulýsing

Smart Mode

Ryksugan nemur hvaða kraftur er bestur á hverri stundu. Minni kraftur fyrir teppi og mottur en meiri kraftur fyrir slétt gólf.

Einstaklega hljóðlát

Pure D8 Ryksugurnar frá Electrolux eru einstaklega hljóðlátar og því aðeins 57db(A) á mesta krafti

One Go Power haus

One Go Power ryksuguhausinn hentar á öll gólfefni, hvort sem það eru flísar, teppi eða parket

Úr umhverfisvænu hráefni

Pure D8 Ryksugurnar eru framleiddar úr 55% endurunni plasti og eru því umhverfisvænni kostur þegar kemur að vali á góðri ryksugu

reddot winner 2024

Red Dot Award er alþjóðleg hönnunarsamkeppni fyrir vöruhönnun, samskiptahönnun og hönnunarhugtök.

Pure Electrolux ryksugurnar eru ekki nema 57dB(A). Með nýrri SmartMode tækni og OneGo ryksuguhausnum aðlagast ryksugan að aðstæðum og hefur aldrei verið jafn auðvelt að ryksuga. 12 metra vinnuradíus, 3-1 fylgihlutur og fljödinn allur af auka eiginleikur gerir Pure línuna frá Electrolux að einum besta kostinum í dag.

Það helsta:

  • SmartMode - Ryksugan nemur hvaða kraftur er bestur á hverri stundu. Minni kraftur fyrir teppi og mottur en meiri kraftur fyrir slétt gólf.
  • 12 metra vinnuradíus – Samanborið við 6-7 metra venjulega, nær þessi ryksuga lengra án þess að þú þarft að skipta um innstungu
  • OneGo Power Clean ryksuguhaus - Safnar ryki og óhreindingum ennþá betur en eldri gerðir
  • AeroPro parkethaus fylgir aukalega með mjúkum hárum sem rispa ekki viðkvæm gólf
  • 3 in 1 fjölnota aukahlutur – mjór stútur, flatur húsgagnabursti og bursti með hárum
  • Þvoanleg HEPA öragnasía – skilar 99% hreinum útblæstri og er viðurkennd af alþjóðlegum ofnæmissamtökum
  • Framleidd í Evrópu úr 55% endurunnu plasti

Og allt hitt:

  • Hæðastillanlegt skaft - hægt er að draga skaftið saman og læsanlegt við hald og ryksuguhaus
  • S-Bag örtrefjapoki sem tekur meira, veitir betri síun, og rifnar síður við aukið álag t.d. glerbrot og oddhvassa hluti
  • Stillanlegur sogkraftur
  • Mjúk gúmmíhjól fyrir parket og flísar
  • Mjúkur stuðari - vernar veggi og húsgögn
  • Hægt að geyma/leggja í lóðréttri eða láréttri stöðu
  • Gott hald og þyngdarpunktur með sérlega vönduðu haldi

Og það tæknilega:

  • 600W mótor sem skilar afli á við eldri gerðir sem nota 2200W
  • Lengd snúru 9 metrar
  • Vinnuradíus 12 metrar
  • Litur: Ljósgrá
  • Hljóð 57 dB(A)
  • Orkunotkun 21,4 kWh á ári
  • Þyngd 7,19 kg

Svipaðar vörurSjá allt →

Electrolux

Electrolux Clean 600 Ryksuga

  • 750W = 2200W mótor
  • 12M vinnuradíus
  • A/B Parket/teppi - Framleidd úr 50% endurunnu plasti
16.717 kr.24.950 kr.
Til á lager