Liebherr Peak Frystiskápur með klakavél
- 177 x 55,9 cm
- Innbyggð klakavél, beintengd
- NoFrost - sjálfvirk afþýðing - WiFi
Liebherr · Vörunúmer SIFNAd5188-001
Sérpöntun
Stór heimilistæki eru sótt á lager í Skeifunni 9, beint fyrir aftan KFC. Vínkælar og viftur eru sótt í verslun. SMS er sent þegar varan er tilbúin til afhendingar.
Þessi þjónusta er í boði með heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu.
30 daga skilaréttur. Skilmálar og ábyrgð · Allir afhendingarmátar
Með innbyggðri klakavél sem er beintengd í vatnslögn sér skápurinn til þess að það séu alltaf til nýjir og ferskir klakar.
Skápurinn er búinn sjálfvirkri afhrímingu svo þú þarft aldrei að afþíða hann og sér hann alfarið um það sjálfur. Einnig þá ýtir sjálfvirk afþíðing undir lengri endingu á matvælum og geymist t.d. kjöt betur í allt að 3-6 mánuði í skáp sem afþíðir sig sjálfur.
Fullar hendur? Engar áhyggjur! Eina sem þarf er létt bank eða raddskipun og skápurinn opnar sig sjálfur. Hægt er að stilla opnunargráðu og tímalengd eftir þörfum. Sjálfvirk lokun sér svo til þess að skápurinn gleymist ekki opinn.
Stýrðu hitastiginu og öðrum aðgerðum í skápnum með einföldu snerti stjórnborði efst á frystiskápnum
Auðvelt er að fjarlægja hillur og skúffur úr skápnum til að koma fyrir stærri hlutum, varstu á hreindýraveiðum eða er stórveisla framundan ? Einnig eru skúffurnar með stoppurum svo þær detta ekki út þó svo að þær séu dregnar alveg fram.