Avintage Platinum DualZone vínkælir
- HxB: 88 x 59,5 cm
- 44 flöskur
- Aðeins 37db - 2 hitasvæði
Liebherr · Vörunúmer UWgb3631
Sérpöntun
Stór heimilistæki eru sótt á lager í Skeifunni 9, beint fyrir aftan KFC. Vínkælar og viftur eru sótt í verslun. SMS er sent þegar varan er tilbúin til afhendingar.
Þessi þjónusta er í boði með heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu.
30 daga skilaréttur. Skilmálar og ábyrgð · Allir afhendingarmátar
Einstaklega vandaður Liebherr Vinidor vínkælir með tvö aðskilin hitasvæði.
Hægt er að velja milli tveggja rakastillinga til að varðveita korkinn í víntöppunum.
Tvöföld vörn með tveimur hitaskynjurum sem mæla innra hitastig og tryggja að vínið haldist á réttum hita. Þó einungis annar skynjarinn nemi varhugaverða breytingu lætur skápurinn strax vita.
Tvöföld vörn gegn útfjólubláum geislum. Skyggt gler er parað með lagi af málm-húðun til að veita ennþá sterkari vörn.
Einstaklega hljóðlát pressa með stöðugum beykihillum minnkar titring og geymir vínið í ró og næði.
Liebherr er ekki aðeins einn stærsti framleiðandi í heiminum á ýmis konar á iðnaðartækjum, s.s. byggingakrönum og beltagröfum, heldur einnig leiðandi á öðrum hátæknisviðum með yfir 42.000 starfsmenn sem starfa í 130 fyrirtækjum víðsvegar um heim og samanlagða veltu uppá 9 milljarða evra. Kæliskáparnir frá Liebherr hafa verið framleiddir í yfir 60 ár eftir ströngustu gæðakröfum í Ochenhausen í Þýskalandi og raðað til sín verðlaunum fyrir gæði, hönnun og endingu. Liebherr framleiðir flestöll kælitæki fyrir Miele.