Electrolux Excellence · Vörunúmer XLNF86Y55Q-26

Electrolux Excellence UltimateCare 800 Þvottavél

136.461 kr.174.950 kr.A

Uppselt

  • 1600 sn/mín - 11 kg hleðslugeta
  • Kolalaus mótor - App stýring
  • Auto Dose sápuskammtari
  • Orkuflokkur A

Hvernig viltu fá vöruna?

Stór heimilistæki eru sótt á lager í Skeifunni 9, beint fyrir aftan KFC. Vínkælar og viftur eru sótt í verslun. SMS er sent þegar varan er tilbúin til afhendingar.

Viltu aðstoð við tækið?

Þessi þjónusta er í boði með heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu.

Tækjavernd Rafha

Samtals136.461 kr.
Verð með virðisaukaskatti

30 daga skilaréttur. Skilmálar og ábyrgð · Allir afhendingarmátar

Vörulýsing

Við kynnum með stolti nýjustu vörulínuna úr smiðju Electrolux. Electrolux Excellence sameinar nýsköpun, gæði og sjálfbærni með kröfur neytenda í fyrirúmi

SteamRefresh gufukerfi

Með 25 mínútna SteamRefresh kerfinu getur þú frískað upp á viðkvæmar flíkur sem hafa t.d. bara verið notaðar í einn dag og þurfa ekki endilega þvott. Hjálpar einnig til við að ná erfiðum krumpum úr fötum svo þú þarft að strauja minna.

Fjarstýrðu vélinni úr símanum

Tengdu þurrkarann við Electrolux snjallsímaforritið og fáðu rauntíma upplýsingar og sparnaðarráð tengd þinni notkun. Tengdu þvottavélina og þurrkaran saman til að fá enn meiri tímasparnað við þvottinn.

QuickCare 49 mínútur

Með QuickCare 49 mínútna þvottakerfi getur þú fengið fullkomin afköst á stuttum tíma með blönduðum þvotti á 30°C hitastigi.

Hygiene Gufukerfi

Hygiene gufukerfið er vottað af Swissatest og fjarlægir 99.99% af öllum sýklum og bakteríum. Kerfið heldur hitanum yfir 60°C og dregur einnig úr ofnæmisvaldandi áhrifum.

AutoDose sjálfvirkur sápuskammtari

Láttu vélina sjá um að skammta þvottaefni og mýkingarefni. Með sjálfvirkum sápuskammtara færðu rétt magn af sápu í þvottinn og sparar í flestum tilfellum þvottaefni á sama tíma. Vélin skynjar hversu mikið vatn þvotturinn dregur í sig og ákvarðar magn þvottaefnis útfrá því.

Það helsta:

  • 11 kg hleðslugeta
  • 1600 snúninga stillanlegur vinduhraði
  • Auto Dose - Sjálfvirkur sápuskammtari sem tryggir hárrétta skömmtun á þvotta- og mýkingarefni í hvert sinn
  • TimeSave+ hraðval - þú getur stytt algengustu kerfi um allt að helming
  • ProSense tækni - aðlagar þvottatíma og vatnsnotkun að þörf og kemur í veg fyrir að fötin þín séu ofþvegin
  • 20 mínútna hraðkerfi
  • Góð sérkerfi þ.á.m. ull & silki, sængur & teppi, strau-létt

Og allt hitt:

  • LED skjár með hvítri LED lýsingusem sýnir framvindu þvottakerfis
  • Framstillt ræsing möguleg 1-20 klukkustundir
  • Active Balance Control mishleðsluskynjun
  • XXL hurðarop með allt að 160° opnun
  • WoolMark Blue ullarvottun
  • Barnalæsing á hurð og stjórnborði
  • Sápuskúffa fyrir fljótandi þvottaefni eða duft
  • Þvottakerfi: PowerClean 59 mínútur, ECO, Bómull, gerfiefni, viðkvæmt, ullarkerfi, 20 mín hraðkerfi, Gufukerfi, Tromluhreinsun, Gufuhreinsun, Tæming/vinda
  • Sérstakt blettakerfi og hólf í sápuskúffu fyrir blettahreinsi
  • Val um forþvott, skolstöðvun eða viðbótarskolun
  • Mishleðsluskynjun - vélin fylgist grannt með þyngdarmisjöfnun í tromlunni og leitast við að jafna tauið út og lágmarka átök við þeytivindu
  • Öflug skoltækni sem byggir á skolun og stuttri vindu til skiptis
  • Barnalæsing

Og það tæknilega:

  • Hljóð aðeins 76 dB(A) í þeytivindu
  • Tromlustærð 69 lítrar
  • Orkunýtni A - Sjá nánar um orkumerkingar ESB hér
  • Þvottahæfni A
  • Vinda B
  • H x B x D: 84,7 x 59x7 x 63,3 cm (full dýpt 66cm)
  • Þyngd: 78,5kg

Svipaðar vörurSjá allt →