Liebherr BioFresh Prime Kæliskápur
- HxB: 177,2 x 56 cm
- 296 lítra
- Hljóð 32 dB(A)
Liebherr · Vörunúmer IRBdi5170
Sérpöntun
Stór heimilistæki eru sótt á lager í Skeifunni 9, beint fyrir aftan KFC. Vínkælar og viftur eru sótt í verslun. SMS er sent þegar varan er tilbúin til afhendingar.
Þessi þjónusta er í boði með heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu.
30 daga skilaréttur. Skilmálar og ábyrgð · Allir afhendingarmátar
Liebherr Peak BioFresh kæliskápur með HydroBreeze rakastýringu í skúffum. Skápurinn er einstaklega hljóðlátur, aðeins 29db.
BioFresh Professional skúffukerfið gefur matvælum aukin ferskleika og geymsluþol. Í bland við rétt hitastig og rakastig færð þú bestu endingu sem kostur er á
Viltu kæla ávexti og grænmeti eins og atvinnu kokkur? Þú munt fá afköstin með HydroBreeze. Kaldur úði blandað við loft rétt yfir 0°C gefur matnum aukinn kraft fyrir lengra geymsluþol. HydroBreeze virkjast á 90 mínútna fresti í 4 sekúndur og í 8 sekúndur þegar hurðin er opin.
Stökkt salat og jarðaber - vinsælustu matvörurnar eiga það besta skilið. Með Biofresh skúffunum nærðu að auka endingu á matvælum, þá sér í lagi þessum viðkvæmustu um töluverðan tíma þökk sé rakastýringu og réttu hitastigi hverju sinni.
Elskar þú fisk? Biofresh Professional skúffurnar halda fiskinum ferskum! Skúffurnar geyma fisk og sjávarfang við kjörhitastigið -2°C, rétt eins og í fiskbúðinni. Stilltu stærð kalda væðisins eins og þú vilt og geymdu afganginn af kjötinu, mjólkurvörum og öðru við kjörhitastig. LED-skjár gefur til kynna að -2°C svæðið sé virkt.
Stjórnaðu og fylgstu með skápnum með Liebherr smáforritinu í símanum þínum. Stýrðu hitastiginu og fáðu meldingu ef örar hitabreytingar eiga sér stað.
Ambient lýsingin gefur ísskápnum þínum sérstakan blæ. Lýsingin skapar einstaka birtu á innréttingunni og eykur andrúmsloftið í heild sinni.
Liebherr er ekki aðeins einn stærsti framleiðandi í heiminum á ýmis konar á iðnaðartækjum s.s. byggingakröngum og beltagröfum heldur einnig leiðandi á öðrum hátæknisviðum með yfir 42.000 starfsmenn sem starfa í 130 fyrirtækjum víðsvegar um heiminn og samanlagða veltu uppá 9 milljarða evra. Kæliskáparnir frá Liebherr hafa verið framleiddir í yfir 60 ár framleiddir eftir ströngustu gæðakröfum í Ochenhausen í Þýskalandi og raðað til sín verðlaunum fyrir gæði, hönnun og endingu. Liebherr framleiðir flestöll kælitæki fyrir Miele.