Liebherr Vinidor vínkælir
- HxB: 177,2 x 56,5 cm
- 166 flöskur - Útdraganlegur hillur
- Tvö hitasvæði
Liebherr · Vörunúmer WPgbi7472
Sérpöntun
Stór heimilistæki eru sótt á lager í Skeifunni 9, beint fyrir aftan KFC. Vínkælar og viftur eru sótt í verslun. SMS er sent þegar varan er tilbúin til afhendingar.
Þessi þjónusta er í boði með heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu.
30 daga skilaréttur. Skilmálar og ábyrgð · Allir afhendingarmátar
Einstaklega vandaður Liebherr Vinidor vínkælir með tvö aðskilin hitasvæði.
Hægt er að velja milli tveggja rakastillinga til að varðveita korkinn í víntöppunum.
Nýttu skápinn til fulls með tveimur stillanlegum hitasvæðum sem tryggja kjörið hitastig hvort sem um ræðir hvítt eða rautt vín.
Tvöföld vörn með tveimur hitaskynjurum sem mæla innra hitastig og tryggja að vínið haldist á réttum hita. Þó einungis annar skynjarinn nemi varhugaverða breytingu lætur skápurinn strax vita.
Þreföld vörn gegn útfjólubláum geislum. Skyggt gler er parað með tveimur lögum af málm-húðun til að veita ennþá sterkari vörn.
Einstaklega hljóðlát pressa með stöðugum beykihillum minnkar titring og geymir vínið í ró og næði.
Liebherr er ekki aðeins einn stærsti framleiðandi í heiminum á ýmis konar á iðnaðartækjum s.s. byggingakrönum og beltagröfum heldur einnig leiðandi á öðrum hátæknisviðum með yfir 42.000 starfsmenn sem starfa í 130 fyrirtækjum víðsvegar um heim og samanlagða veltu uppá 9 milljarða evra. Kæliskáparnir frá Liebherr hafa verið framleiddir í yfir 60 ár eftir ströngustu gæðakröfum í Ochenhausen í Þýskalandi og raðað til sín verðlaunum fyrir gæði, hönnun og endingu. Liebherr framleiðir flestöll kælitæki fyrir Miele.